Opinn fundur skólaráðs Grunnskóla Raufarhafnar

5. október 2023

Þriðjudaginn 10. október er opinn fundur í skólaráði Grunnskóla Raufarhafnar. Þá er öllum í skólasamfélaginu frjálst að mæta og taka þátt. Fundurinn hefst kl. 17.00 í skólanum. Lögum samkvæmt er skólaráð samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar ekki um málefni einstakra nemenda, foreldra eða starfsfólks skóla. Öll velkomin.

Dagskrá er sem hér segir:

  1. Skipan, hlutverk og starfsreglur skólaráðs
  2. Skipulag og áherslur vetrarins
  3. Starfsáætlun, skólanámskrá, námsvísir
  4. Samstarf 
  5. Innra mat
  6. Önnur mál

Frekari upplýsingar og fræðsla um skólaráð má lesa á heimasíðu skólans.



Eftir Gunnur Árnadóttir 4. febrúar 2025
Foreldrafélagið Velvakandi færðu nemendum nokkur spil að gjöf í byrjun desembermánaðar. Þeim var sannarlega vel tekið og mikið spilað á aðventunni. Við þökkum kærlega fyrir þessa gjöf.
16. maí 2024
Nú liggur fyrir mat á starfsáætlun Grunnskóla Raufarhafnar fyrir veturinn í vetur. Skýrsla um innra mat hefur einnig verið gerð. Á hverju hausti er gerð starfsáætlun í grunnskólum sem lýsir því hvernig fyrirhugað er að starfsemin fari fram. Til þess að tryggja stöðugar umbætur á gerð starfsáætlunar er mikilvægt að meta að vori hvernig gengið hefur. Nú þegar ráðinn hefur verið nýr skólastjóri við skólann fannst okkur í skólastjórn Grunnskóla Raufarhafnar mikilvægt að vanda sérstaklega matið til þess að auðvelda nýju starfsfólki að átta sig á starfseminni. Starfsáætlunin er birt á heimasíðu skólans og má finna hér. Ítarleg innra mats skýrsla var jafnframt unnin og skólastjórnin lagði mat á öll þau viðmið um gæðastarf sem gilda í Norðurþingi. Markmiðið er sem áður að reyna að auðvelda nýju starfsfólki, skólaráði, foreldraráði, foreldrum og nemendum að skipuleggja helstu umbætur sem mikilvægast er að ráðast í. Eins og sjá má eru nú þegar búið að gera tillögu að brýnustu úrbótunum, tímasetja, skrá viðmið um árangur og ábyrgðaraðila. Skóladagatal næsta vetrar er tilbúið og er að finna hér Það er von okkar að skólastarfið á Raufarhöfn verði farsælt og við þökkum fyrir traustið sem okkur var sýnt í vetur. Skólastjórn Grunnskóla Raufarhafnar Gunnþór, Kristrún, Tinna og Arndís
22. febrúar 2024
Nemendur Grunnskóla Raufarhafnar buðu nemendum og starfsfólki Öxarfjarðarskóla í heimsókn þann 21. febrúar 2024 til að efla samvinnu og samstarf á milli skólanna tveggja í Norðurþingi. Báðir skólarnir eru með nemendur frá 1. bekk og upp í 10. bekk og taka allar deildir grunnskólanna þátt í samstarfinu. Fréttabréfið í heild sinni er hér - myndskreytt og skemmtilegt. Kennarar og skólastjórn
7. september 2023
Á mánudaginn kl. 16.00 verður haldinn fjarfundur með skólastjórn Raufarhafnarskóla. Farið verður yfir samstarf og samvinnu Grunnskóla Raufarhafnar og Ásgarðsskóla, fyrirkomulag sundkennslu í vetur og samstarf við tónlistarskólann. Foreldrar eru beðnir um að hika ekki við að koma inn á fundinn með allar mögulegar spurningar um skólastarf í vetur. Hér er hlekkur á fundinn en hann fer fram á Google MEET. Foreldrafundur - Raufarhafnarskóli Monday, September 11 · 4:00 – 5:00pm Video call link: https://meet.google.com/bpu-fgqd-nyp